Byrjunarlið Stjörnunnar og ÍBV: Emil Atla mættur aftur og Tomic ekki með ÍBV

Daníel Finns Matthíasson skoraði í síðasta leik

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Milan Tomic er ekki með ÍBV í dag

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daníel Finns Matthíasson skoraði í síðasta leik

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Klukkan 14:00 hefst fyrsta umferð eftir skiptingu í neðri hlutanum. Meðal leikja er Stjarnan á móti ÍBV á Samsung-vellinum. Stjarnan er í efsta sæti neðri hluta en ÍBV í því neðsta. Síðasti leikur liðanna fyrir skiptinguna var á móti hvert öðru og enduðu leikar þar með 2-2 jafntefli.
Stjarnan gerir tvær breytingar frá þeim leik. Emil Atlason og Daníel Finns koma í liðið. Árni Vill og Dankerlui fara á bekkinn.
Aleksandar Linta gerir eina breytingu eftir jafnteflið í Miðgarði. Viggó Valgeirsson kemur í byrjunarliðið. Milan Tomic sem byrjaði síðasta leik er utan hóps.
Byrjunarlið Stjarnan
- 12. Árni Snær Ólafsson (m)
- 3. Gustav Kjeldsen
- 5. Guðmundur Kristjánsson
- 7. Örvar Eggertsson
- 10. Daníel Finns Matthíasson
- 11. Birnir Snær Ingason
- 14. Bjarki Hauksson
- 18. Guðmundur Baldvin Nökkvason (f)
- 22. Emil Atlason (f)
- 23. Benedikt V. Warén
- 29. Alex Þór Hauksson
Byrjunarlið ÍBV
- 33. Ari i Haraldstovu Petersen (m)
- 4. Mattias Edeland
- 8. Bjarki Björn Gunnarsson
- 10. Viggó Valgeirsson
- 11. Aron Lucas Vokes
- 22. Eiður Atli Rúnarsson
- 23. Arnór Ingi Kristinsson
- 25. Alex Freyr Hilmarsson (f)
- 26. Felix Örn Friðriksson
- 30. Vicente Rafael Valor Martínez
- 67. Omar Sowe

Milan Tomic er ekki með ÍBV í dag

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
