Fotbolti.net
13.09.26 - 11:55
Brynjar Ingi Erluson

Kýpur fær öflugan styrk fyrir Þjóðadeildina

Marcus Edwards mun leika með Kýpur

Marcus Edwards mun leika með Kýpur

Canon

Mynd: EPA

Kýpverska landsliðið er að fá gríðarlega öflugan leikmann inn í hópinn fyrir Þjóðadeildina í haust, en Englendingurinn Marcus Edwards hefur samþykkt að spila fyrir þjóðina.
Edwards er 27 ára gamall sóknarsinnaður leikmaður sem fór í gegnum akademíu Tottenham áður en hann blómstraði hjá Vitoria de Guimaraes og Sporting í Portúgal.

Um tíma var hann orðaður við nokkur stórlið í stærstu deildum Evrópu en tók dýfu eftir frábært tímabil og endaði að lokum hjá Burnley.

Hann lék 23 leiki og skoraði eitt mark með Burnley í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og hefur einnig komið við sögu í fyrstu leikjum liðsins á nýju tímabili.

Edwards lék á sínum tíma yfir 40 landsleiki fyrir yngri landslið Englands en hefur nú gefið drauminn um enska A-landsliðið upp á bátinn og ákveðið að skipta um landslið.

Móðir Edwards er frá Kýpur og hefur hann samþykkt boð kýpverska fótboltasambandsins um að leika með landsliðinu í Þjóðadeildinni í haust.

Hann er þegar kominn með kýpverskt vegabréf og nú er unnið að því að ganga frá öllu svo hann geti spilað með landsliðinu í landsleikjaglugganum sem hefst í lok september.

Kýpur leikur fjóra leiki í Þjóðadeildinni frá lok september og fram í byrjun október. Liðið mætir Lettlandi tvisvar og leikur einnig gegn Svartfjallalandi og Armeníu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.