Fotbolti.net
13.09.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson

Ísland í dag - Fallbarátta og umspil

Ísland í dag - Fallbarátta og umspil
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Það er mikið fjör framundan í íslenska boltanum í dag þar sem fjórir leikir eru á dagskrá í Bestu deild karla og tveir í úrslitakeppni Lengjudeildarinnar.
Í efri hluta Bestu deildarinnar eigast KR og ÍA við aðeins viku eftir 3-1 sigur Skagamanna á Akranesi í sömu viðureign. KR situr í þriðja sæti, níu stigum á eftir toppliði Víkings R. þegar fimm umferðir eru eftir.

Skagamenn sigla lygnan sjó, fjórtán stigum á eftir KR.

Það eru einnig fimm umferðir eftir hjá liðum í neðri hlutanum þar sem fjögur lið eru í harðri fallbaráttu. Aðeins þrjú stig skilja fjögur neðstu liðin að.

FH og KA eigast við í fallbaráttuslag í Hafnarfirði á sama tíma og Valur og Stjarnan, sem eru sjö og átta stigum frá fallsæti, eiga heimaleiki við fallbaráttulið ÍBV og Þórs. Það er því mikið undir í leikjum dagsins.

Síðar í dag fara seinni undanúrslitaleikirnir í umspili Lengjudeildarinnar fram. Þar á Þróttur R. heimaleik við Njarðvík áður en Fylkir tekur á móti HK.

Heimaliðin Þróttur og Fylkir eru með eins marks forystu hvort eftir fyrri leikina á útivelli. Þróttur vann 0-1 í Njarðvík á meðan Fylkir sigraði 2-3 eftir fjörugan leik í Kópavogi.

Besta karla - Efri hluti
14:00 KR-ÍA (Meistaravellir)

Besta karla - Neðri hluti
14:00 Stjarnan-ÍBV (Samsungvöllurinn)
14:00 FH-KA (Kaplakrikavöllur)
14:00 Valur-Þór (N1-völlurinn Hlíðarenda)

Lengjudeild karla - Umspil
16:15 Þróttur R.-Njarðvík (PEPSI völlurinn)
19:15 Fylkir-HK (tekk VÖLLURINN)
Ísland í dag - Fallbarátta og umspil
Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Ísland í dag - Fallbarátta og umspil
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Stjarnan22-828
2Valur22-627
3FH22-1221
4Þór22-2821
5KA22-1320
6ÍBV22-1318
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.