Fotbolti.net
13.09.26 - 09:30
Ívan Guðjón Baldursson

„Markmiðið er að vinna Meistaradeildina"

„Markmiðið er að vinna Meistaradeildina"
Canon

Mynd: EPA

Hansi Flick þjálfari Barcelona svaraði spurningum á fréttamannafundi í gær.
Spánarmeistararnir heimsækja Levante í spænsku deildinni í dag og var Flick meðal annars spurður út í markmið tímabilsins.

„Markmiðið okkar á þessu tímabili er að vinna Meistaradeildina. Það er líka mikilvægt að vinna La Liga, það væri ótrúlegt að vinna deildina þrjú ár í röð," sagði Flick, sem hefur unnið deildina bæði árin sín við stjórnvölinn.

„Raphinha er að standa sig stórkostlega í nýju hlutverki sem nían. Hann er ótrúlegur leikmaður, að mínu viti er hann einn af bestu leikmönnum í heimi."

Táningurinn Hamza Abdelkarim var keyptur í sumar og hefur aðeins fengið nokkrar mínútur á keppnistímabilinu eftir mikinn spiltíma á undirbúningstímabilinu. Abdelkarim er 18 ára gamall og skoraði fjögur mörk í fimm æfingaleikjum. Fær hann tækifæri gegn Levante?

„Ég er mjög ánægður með Hamza, hann átti frábært undirbúningstímabil og er í baráttu um sæti í byrjunarliðinu. Hann getur reynst afar mikilvægur fyrir framtíð félagsins."
„Markmiðið er að vinna Meistaradeildina"
Canon

Mynd: Barcelona

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona8+2724
2Atletico Madrid8+1019
3Betis8+519
4Real Madrid8+1118
5Sevilla8+114
6Real Sociedad8-313
7Alaves8+411
8Deportivo8+110
9Celta8+28
10Athletic6+18
11Villarreal808
12Espanyol808
13Vallecano7-58
14Getafe8-68
15Racing Santander8-108
16Osasuna8-108
17Levante7-46
18Elche8-66
19Valencia8-95
20Malaga8-94
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.