13.09.26 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu atvikið: Klúður tímabilsins á Englandi

Vázquez skoraði 3 mörk í 17 deildarleikjum með Getafe í La Liga á síðustu leiktíð.

Mynd: EPA

Derby County tók á móti Birmingham City í ensku Championship deildinni í gær og átti Luis Vázquez, leikmaður Birmingham, klúður tímabilsins í seinni hálfleik.
Hann fékk boltann meðfram jörðinni og stóð tvo metra frá galopnu marki, en tókst á einhvern undraverðan hátt að skjóta yfir.
Þetta klúður kom ekki að sök þar sem Birmingham tókst að vinna leikinn, en þetta hefur ekki verið gott fyrir sjálfstraustið hjá Vázquez sem er 25 ára gamall og hefur ekki skorað frá félagaskiptunum til Birmingham í sumar.
Atvikið er hægt að sjá hér fyrir neðan með því að spóla á 9:00 í myndbandinu.