Fotbolti.net
13.09.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson

Evrópa í dag - Hákon, Orri og Cole eiga heimaleiki

Evrópa í dag - Hákon, Orri og Cole eiga heimaleiki
Canon

Mynd: EPA

Það er nóg um að vera í evrópska fótboltanum í dag og koma nokkrir Íslendingar við sögu í sterkum deildum.
Hákon Arnar Haraldsson er lykilmaður í liði Lille sem tekur á móti Troyes í efstu deild franska boltans. Þar er búist við þægilegum sigri Lille sem er með sjö stig eftir þrjár fyrstu umferðirnar á nýju tímabili.

Orri Steinn Óskarsson er þá kominn með eitt mark í fjórum leikjum með Real Sociedad og gæti komið við sögu á heimavelli gegn stórliði Atlético Madrid.

Orri og félagar eiga 7 stig eftir 5 umferðir, með jafn mörg stig og Atlético sem á leik til góða.

Cole Campbell gæti þá byrjað þegar nýliðar Elversberg taka á móti Þýskalandsmeisturum FC Bayern.

Í öðrum leikjum dagsins kíkja Evrópu- og Frakklandsmeistarar Paris Saint-Germain í heimsókn til Brest, en PSG er afar óvænt aðeins komið með tvö stig eftir þrjár fyrstu umferðirnar í Ligue 1. Brest er með fimm stig.

Spánarmeistarar Barcelona heimsækja Levante í La Liga og RB Leipzig mætir HSV í Þýskalandi.

Ligue 1
13:00 Lille - Troyes
15:15 Le Mans - Lens
18:45 Brest - PSG

Bundesliga
13:30 RB Leipzig - Hamburger
15:30 Elversberg - Bayern

Serie A
13:00 Lecce - Monza
16:00 Napoli - Bologna
18:45 Sassuolo - Juventus

La Liga
12:00 Celta - Malaga
14:15 Levante - Barcelona
16:30 Getafe - Deportivo
19:00 Real Sociedad - Atletico Madrid
Evrópa í dag - Hákon, Orri og Cole eiga heimaleiki
Canon

Mynd: EPA

Evrópa í dag - Hákon, Orri og Cole eiga heimaleiki
Canon

Mynd: EPA

Bundesliga - karlar

#LiðLmunStig
1Freiburg5+1013
2Dortmund5+713
3Bayern5+1211
4Leverkusen5+610
5RB Leipzig5+109
6Augsburg5+58
7Werder508
8Mainz5+37
9Elversberg507
10Köln5-27
11Stuttgart5-16
12Hamburger5-106
13Schalke 045-25
14Frankfurt5-75
15Paderborn5-44
16Union Berlin5-124
17Hoffenheim5-43
18Gladbach5-110
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.