Fotbolti.net
13.09.26 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson

Le Bris: Raya var einn af bestu mönnum vallarins

Le Bris: Raya var einn af bestu mönnum vallarins
Canon

Mynd: EPA

Régis Le Bris þjálfari Sunderland svaraði spurningum eftir naumt tap gegn Englandsmeisturum Arsenal í gærkvöldi.
England: Meistarasigur í Sunderland
TENGT EFNI

England: Meistarasigur í Sunderland

Sunderland sýndi flotta frammistöðu og fékk vítaspyrnu í stöðunni 0-0, en David Raya varði frábærlega til að halda leiknum jöfnum. Skömmu síðar náði Arsenal forystunni með laglegu skoti utan teigs frá Bruno Guimaraes.

„Þetta eru pirrandi úrslit eftir góðan leik hjá strákunum. Við sýndum að við getum veitt bestu liðunum samkeppni. Mér fannst við eiga skilið að fá þessa vítaspyrnu en 30 sekúndum seinna fengum við mark í bakið. Svona er þetta á þessu gæðastigi, við vorum að keppa gegn ógnarsterku liði. Þegar við nýtum ekki færin okkar þá gerum við sjálfum okkur erfitt fyrir," sagði Le Bris.

„Við vorum aðeins of passívir í fyrri hálfleik og sýndum þeim full mikla virðingu. Við vorum vel skipulagðir og vörðumst vel en vorum sammála í leikhlénu um að það væri kominn tími til að sýna hvað við getum gert með boltann og við gerðum það. Strákarnir voru líflegir og sköpuðu færi en okkur tókst ekki að skora.

„(David) Raya var einn af bestu leikmönnum vallarins í dag og það sýnir hversu hættulegir við vorum. Við erum á góðum stað og getum orðið ennþá betri. Við vorum að spila gegn andstæðingum sem eru á svakalegu skriði. Við vorum nálægt þeim í kvöld en það dugði ekki til. Við verðum að gera betur ef við ætlum að ná í úrslit gegn þeim. Við erum að bæta okkur í hverri viku og verðum að halda áfram á sömu braut."


Sunderland var eitt af spútnik liðum ensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð og náði Evrópudeildarsæti.

„Við erum stoltir af því að spila í Evrópudeildinni og þetta verður alvöru veisla fyrir stuðningsmenn. Við erum stoltir af því hvar við erum og við eigum þetta fyllilega skilið. Við höfum lagt mikla vinnu í að komast hingað. Við sýndum mikinn persónuleika þrátt fyrir tapið og tengdumst stuðningsmönnum. Þetta var mikilvæg frammistaða fyrir okkur."

Sunderland er með fjögur stig eftir fjórar fyrstu umferðir deildartímabilsins.

Arteta um vítaspyrnudóminn: Hann notaði júdóbragð
TENGT EFNI

Arteta um vítaspyrnudóminn: Hann notaði júdóbragð

Le Bris: Raya var einn af bestu mönnum vallarins
Canon

Mynd: EPA

Le Bris: Raya var einn af bestu mönnum vallarins
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City6+1118
2Arsenal6+515
3Brighton6+1313
4Brentford6+610
5Everton6+310
6Chelsea6+210
7Leeds6+39
8Hull City6+29
9Liverpool609
10Ipswich Town6-39
11Newcastle6-38
12Crystal Palace6-37
13Man Utd606
14Coventry6-66
15Nott. Forest6-35
16Aston Villa6-55
17Sunderland6-64
18Bournemouth6-63
19Tottenham6-63
20Fulham6-42
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.