Linta ósáttur með ákvarðanatökur - dómarans og leikmanna

Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV fór í Garðabæinn í dag og spilaði annan leikinn í röð við Stjörnunna. Í þetta sinn var það 2-0 tap á Samsungvellinum. ÍBV ennþá í neðsta sæti Bestu Deildarinnar og eiga nú fjóra leiki eftir.
„Ekki pirraður úrslitin og leikinn heldur ákvarðanir í leiknum. Mér líkar ekki að tala um þessa hluti en ég var ekki sammála hlutum í leiknum. Það er augljóst."
„Þessar ákvarðanir (dómara ákvarðanir) hjálpuðu Stjörnunni að vera betri í fyrri hálfleik. Ég óska Stjörnunni til hamingju með sigurinn. Ákvörðu hjálpaði þeim að komast yfir, þegar maður leiðir þá hefur smá forskot og ert betri."
„Já, þeir voru 2-0 yfir en sköpuðu ekki mikið, mínu mati bara jafn leikur. Ég tel okkur þó geta verið betri sérstaklega í fyrri hálfleik. Ég er sáttur með seinni hálfleikinn, spiluðum mjög vel. Að sjálfsögðu er Stjarnan sterkt lið og vörðust mjög vel. Að lokum náum við ekki að skora, tel að frammistaðan og krafturinn sem við settum í seinni hafi átt að skila allavega einu marki."
„Vantaði upp á ákvarðanatöku hjá okkur á síðasta þriðjung. Smá ró og gæði í ákvörðunum."
Annan leikinn í röð þurfti Omar Sowe að fara útaf velli vegna meiðsla í fyrri hálfleik. „Við vissum að hann er með þetta meiðsli, við erum ekki með mikla valkosti. Tókum áhættu að byrja hann útaf, ef hann byrjar, okey, þá kemur hann útaf. Ef við byrjum með hann á bekknum og þetta gerist þá erum við í verri málum. Það er synd að missa Omar, held hann verði betri fyrir næsta leik. Okkur vantar líka Sigga (Sigurð Arnar) og Tomic. Hermann ekkert búin að vera með okkur í sumar. Við erum að ströggla, bara hrós á strákana sem stigu inn, ég er glaður með hvernig þeir spiluðu. Leikmenn á bekknum eru ekki varamenn, þeir eru "gamechangers"."
„Við þurfum að fara safna stigum, getum ekki bara horft á KA og Þór. Ennþá fjórir leikir eftir, 12stig og ég held að þetta verður slagur til síðustu umferðar."
Viðtalið er í heild sinni hér í spilaranum að ofan
