Olgeir rólegur á hliðarlínunni: Það er gott að vera í Stjörnunni

Olgeir Sigurgeirsson, þjálfari Stjörnunnar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Olgeir Sigurgeirsson, þjálfari Stjörnunnar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan vann nokkuð þægilegan 2-0 sigur á ÍBV á nýja gervigrasinu á Samsungvellinum í dag. Nýja þjálfarateymið ennþá taplaust og liðið í toppsæti neðri hlutans. Olgeir Sigurgeirsson einn af þjálfurum Stjörnunnar mætti í viðtal eftir sigurinn við Fótbolta.net
„Líður mjög vel, góður leikur hjá strákunum. Orkumiklir og kraftmikilir, mér fannst þessi sigur eiginlega aldrei í hættu."
„Við vorum ekki mikið með boltann (í seinni). Við vorum alltaf með leikinn under control. Fannst ÍBV aldrei ná að spila sig í gegn eða búa sig til einhver færi. Ég var mjög rólegur á hliðarlínunni, geggjað að sjá okkur geta spilað vörn einsog sókn, bara frábær leikur."
Stjarnan mætti ÍBV í síðustu umferð og fór sá leikur 2-2. Hlýtur að vera svolítið skrítið að mæta sama liðinu tvisvar á stuttum tíma. „Já, pínu sérstakt en skemmtilegt."
„Við þurfum að mæta og keppa,strákarnir mæta hingað í hverri viku til að keppa á æfingum og berjast um að vera í liðinu. Þegar kemur að leikdegi þurfa þeir að spila til að halda sætinu í sínu liði eða koma inná og berjast fyrir sínu. Það er ekkert sjálfgefið að fá að spila fyrir Stjörnunna."
„Lífið er gott og það er gott að vera í Stjörnunni."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér í spilaranum að ofan
