Þýska félagið Eintracht Frankfurt hefur fengið framherjann Luka Jovic á láni frá Real Madrid út tímabilið.
Jovic sló í gegn með Fankfurt og var í kjölfarið keyptur til Real Madrid á 55 milljónir punda sumarið 2019.
Jovic sló í gegn með Fankfurt og var í kjölfarið keyptur til Real Madrid á 55 milljónir punda sumarið 2019.
Honum hefur aðeins tekist að skora tvö mörk í 32 leikjum fyrir spænska stórveldið. Hann er ekki búinn að vera mikið inn í myndinni á þessu tímabili og hafa meiðsli spilað inn í.
Hinn 23 ára gamli Jovic fer nú aftur á sínar gömlu slóðir hjá Frankfurt og mun reyna að finna skotskóna að nýju þar.
Athugasemdir