fös 14. febrúar 2020 20:27
Elvar Geir Magnússon
Castillion vann mál gegn FH
Búinn að semja við félag í Indónesíu
Castillion í leik með FH.
Castillion í leik með FH.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sóknarmaðurinn Geoffrey Castillion vann mál gegn FH varðandi launamál en þetta kemur fram í skýrslu saminga- og félagaskiptanefndar KSÍ sem opinberuð var í kvöld.

Ágreiningur var vegna launamála leikmannsins.

Castillion lék með FH sumarið 2018 en fann sig ekki. Hann var hjá Fylki í fyrra og ánægja var með frammistöðu hans. Hann hefur hinsvegar samið við Persib Bandung, félag í Indónesíu, en tilkynnt var um það í vikunni.

Úr skýrslu samninga- og félagaskiptanefndar
Ágreiningur aðila takmarkaðist við það hvort FH hefði haft heimild, samkvæmt samningi aðila, til að draga af launum GC þann tíma sem GC dvaldist í Hollandi.  Eins og fram kemur í gögnum málsins þá sendi framkvæmdastjóri FH iMessage á GC þar sem fram kom að hann þyrfti að mæta til æfinga til þess að eiga rétt á launum.

Þeim skilaboðum svaraði GC á þann hátt að hann hafi þurft að yfirgefa landið þar sem hann hafi verið án húsnæðis. Hann væri reiðubúinn að koma til baka og mæta á æfingar að því tilskyldu að FH útvegaði honum húsnæði og flugmiða, eins og ákvæði voru um í samningi aðila. FH bar, samkvæmt samningi aðila, að útvega GC íbúð á Íslandi á samningstímanum.

Þegar GC var vísað af hóteli því sem hann hafði dvalið á, án þess að fá leiðbeiningar um nýjan dvalarstað, var það ekki talið ómálefnalegt af honum að hafa haldið af landi brott. Sér í lagi í ljósi þess að aðallið FH var við æfingar erlendis og samkvæmt samningi aðila skyldi hann einungis æfa með aðalliði FH. Skýringar FH þess efnis að félagið hafi verið búið að útvega annað hótel skipta ekki máli, þar sem gögn hafa ekki verið lögð fram um að GC hafi verið tilkynnt um það tímanlega. SF lítur svo á, í ljósi samskipta, að skylda hafi hvílt á FH, sem vinnuveitanda, að standa við samninginn við GC hvað varðar útvegun húsnæðis og flugmiða, jafnframt því að gera honum ljóst, þannig að ekki færi á milli mála, til hvers var ætlast af honum sem leikmaður FH.

SF metur samskipti á milli aðila þannig að FH hafi ekki uppfyllt skyldur sínar í þessum efnum. Við þær aðstæður var ekki unnt að ætlast til þess af GC að hann kæmi til landsins og til æfinga, eins og byggt er af hálfu FH. Með vísan til þessa er það niðurstaða nefndarinnar að FH beri að greiða GC laun vegna þess tímabils sem hann krafðist.
Athugasemdir
banner
banner