Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fös 14. febrúar 2020 10:00
Magnús Már Einarsson
Mino Raiola: Pogba til í að fara aftur til Juventus
Mynd: Getty Images
Paul Pogba, miðjumaður Manchester United, er tilbúinn að ganga aftur í raðir Juventus í sumar að sögn umboðsmanns hans Mino Raiola.

Hinn 26 ára gamli Pogba hefur lítið spilað á þessu tímabili vegna meiðsla en orðrómur er um að hann fari frá United í sumar.

Pogba spilaði með Juventus frá 2012 til 2016 áður en hann gekk aftur í raðir Manchester United.

„Ítalía er eins og heima fyrir Paul. Hann væri til í að fara aftur til Juve en við sjáum hvað gerist eftir EM," sagði Raiola.

„Paul vill spila á meðal þeirra bestu en hann getur ekki yfirgefið Manchester United ef þeir eru í erfiðri stöðu."
Athugasemdir
banner
banner
banner