Neðst má sjá myndir - varað er við því að þær eru ekki fyrir viðkvæma
Einar Tómas Sveinbjarnarson, leikmaður Gróttu, meiddist eftir um stundarfjórðungsleik þegar Grótta mætti Þór í Boganum á Akureyri í kvöld. Liðin voru að spila í Lengjubikarnum. Einar Tómas fékk takka á skóm Þórsarans Ibrahima Balde í hnéð og fékk ansi myndarlegan skurð.
Hann lagðist niður og fékk meðhöndlun frá sjúkraþjálfara Þórs. Strax var hringt á sjúkrabíl og um tíu mínútum síðar sjúkrabíll mættur á svæðið. Hann var færður upp á börur og keyrður á þeim inn í sjúkrabíl. Alls var um 20 mínútna hlé á leiknum, allavega voru tuttugu mínútur í uppbótartíma fyrri hálfleiks.

Fótboti.net hafði samband við Einar Tómas eftir leikinn.
„Ég er góður. Ég lenti á takkanum á leikmanni Þórs og fékk 7-8 cm skurð. Það er búið að sauma, sex spor, og allt klárt. Liðið fer suður með rútu á morgun, en ég fer með flugi."
Gistir þú á sjúkrahúsinu?
„Nei nei, ég verð mættur á Götubarinn eftir smá," segir Einar léttur. Gróttuliðið ætlar sér að eiga gott kvöld saman fyrir norðan.
„Þetta er á slæmum stað sagði læknirinn upp á hreyfigetu, ég má alveg labba en má ekki beygja hnéð mikið næstu tvær vikurnar."
Fréttamaður var í Boganum í kvöld og virtist Einar Tómas átta sig nokkrum sekúndum eftir návígið að eitthvað væri að.
„Þetta var nákvæmlega þannig, ég fann ekkert mikið fyrir þessu en svo horfi ég bara niður og sé inn í hnéð," segir Einar. Hann er fæddur árið 1999 og er uppalinn í Gróttu. Á síðasta tímabili lék hann 15 leiki þegar Grótta endaði í 2. sæti 2. deildar og komst upp í Lengjudeildina.
Hér að neðan má sjá myndir af skurðinum.
Varað er við því að þær eru ekki fyrir viðkvæma.
Athugasemdir