Nuno Espírito Santo þjálfari West Ham svaraði spurningum eftir nauman sigur á Burton Albion í 32-liða úrslitum enska bikarsins í dag.
Hamrarnir þurftu sigurmark í framlengingu til að hafa betur gegn Mansfield Town úr League One deildinni.
Crysencio Summerville kom inn af bekknum og skoraði sigurmarkið. Hann er þar með kominn með sex mörk og stoðsendingu í síðustu sjö leikjum í öllum keppnum.
„Hann er fullur sjálfstrausts og allt sem hann gerir á vellinum virðist ganga upp. Við nýttum okkur það í dag," sagði Nuno. „Þetta snýst allt um sjálfstraust og honum líður mjög vel þessa stundina. Hann leggur mikið á sig fyrir liðið og veit að hann getur skipt sköpum."
Hinn 22 ára gamli Freddie Potts kom inn af bekknum og fékk svo að líta beint rautt spjald skömmu eftir markið hjá Summerville.
„Ég get ekki tjáð mig um þessa ákvörðun því ég á eftir að horfa á endursýninguna. Ég vil samt taka fram að Freddie Potts er ekki ofbeldisfullur leikmaður. Hann er mjög sanngjarn þó að leikstíllinn hans sé aggressívur. Hann er alls ekki ofbeldisfullur."
Gary Bowyer þjálfar Burton sem er í fallbaráttu í League One deildinni.
„Strákarnir eiga stórt hrós skilið fyrir frammistöðuna sína í dag. Við vorum inni í leiknum gegn úrvalsdeildarliði allt þar til á síðustu sekúndu framlengingarinnar. Allt félagið getur verið stolt af þessari frammistöðu," sagði Bowyer.
„Við fengum góð færi til að skora en tókst ekki að nýta þau. Svo skora þeir eftir magnað framtak frá Summerville. Þetta er eitthvað sem hann hefur í sínu vopnabúri."
14.02.2026 15:03
Enski bikarinn: West Ham lenti í vandræðum með C-deildarlið
Athugasemdir




