Stórlið á eftir Igor Thiago - Andre Onana til sölu - Endrick ekki til sölu - Mörg lið á eftir framherja Brentford
banner
   lau 14. febrúar 2026 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Szoboszlai dreymir um Real Madrid
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Marco Rossi landsliðsþjálfari Ungverjalands lét áhugaverð ummæli falla á dögunum þegar hann ræddi um Dominik Szoboszlai.

Szoboszlai er meðal bestu leikmanna Liverpool og algjör goðsögn í Ungverjalandi eftir að hafa átt magnaðan landsliðsferil þrátt fyrir ungan aldur.

Szoboszlai er sóknarsinnaður miðjumaður að upplagi en getur einnig spilað sem bakvörður eða kantmaður og hefur verið að leysa bakvarðarstöðuna frábærlega af hólmi hjá Liverpool.

Hann er 25 ára gamall og með tvö og hálft ár eftir af samningi við Englandsmeistarana, en vill hann vera áfram hjá félaginu? Szoboszlai hefur verið orðaður við Real Madrid að undanförnu en hann er í viðræðum um að framlengja samninginn við Liverpool þessa dagana.

„Draumur hans hefur alltaf verið að spila fyrir Real Madrid. Ég hef fylgst mjög vel með ferlinum hjá Dominik og á í nánu sambandi við hann. Hann hefur dreymt um Real Madrid frá því að hann var barn," sagði Rossi.

„Ég veit ekki hvort félagaskiptin muni nokkurn tímann ganga í gegn, þetta er ákvörðun sem hann þarf að taka í samráði við félagið sitt. Ég get alls ekki útilokað að hann verði áfram hjá Liverpool, sérstaklega miðað við hversu mikilvægur hann er fyrir félagið. Hann er lykilmaður í einu af stærstu félagsliðum í heimi."

Spænska götublaðið Marca segir að Real Madrid sé reiðubúið til að bjóða 30 milljónir evra og Eduardo Camavinga í skiptum fyrir Szoboszlai.
Athugasemdir
banner
banner
banner