Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 14. mars 2023 16:16
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mia Gunter er látin
Mia Gunter í leik með KR.
Mia Gunter í leik með KR.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mia Gunter, sem lék hér á landi með KR sumarið 2018, lést þann 5. mars síðastliðinn. Hún var 28 ára gömul.

Hún spilaði alls 18 leiki með KR í deild og bikar og skoraði í þeim þrjú mörk. Hún tryggði liðinu sigra gegn Selfossi og Þór/KA sem hjálpuðu KR-liðinu að halda sér uppi það sumarið.

„Hún elskaði fótboltaupplifun sína þar og alla þá mögnuðu útivist sem Ísland bauð upp á," er á meðal þess sem kemur fram í minningargrein um Gunter hjá Edmonton Journal.

„Mia myndaði djúp vináttubönd um allan heim við meðlimi allra félaga sem hún spilaði fyrir. Það var þannig manneskja og liðsfélagi sem hún var."

Hún spilaði einnig í Danmörku á atvinnumannaferli sínum en áður en hann hófst þá lék hún í háskólaboltanum í Bandaríkjunum og Kanada.

Eftir að hún spilaði fótbolta hér á landi þá fór hún til Bretlands þar sem hún lagði stund á lögfræði. Hún var þar verðlaunuð fyrir góðan námsárangur en hún útskrifaðist nýverið frá háskólanum í York.

Þetta eru afar sorgleg tíðindi en athöfn til minningar um Gunter verður haldin í heimabæ hennar, Edmonton í Kanada, á morgun.
Athugasemdir
banner
banner
banner