Rashford, Tudor, Glasner, Iraola, Höjlund, Goretzka, Bastoni og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   lau 14. mars 2026 23:30
Brynjar Ingi Erluson
Guardiola: Hver sagði það?
Pep Guardiola í stúkunni en hann virtist kunna vel við sig þar
Pep Guardiola í stúkunni en hann virtist kunna vel við sig þar
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Pep Guardiola segist ekki hafa gefið Englandsmeistaratitilinn upp á bátinn þrátt fyrir að hafa náð í aðeins eitt stig gegn West Ham í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Guardiola talaði um það á fréttamannafundi fyrir leikinn að ef Man City myndi tapa stigum gegn West Ham þá væri titilbaráttunni lokið en hann virðist ekki kannast við þessi orð.

Liðið er níu stigum frá Arsenal, en á að vísu leik til góða og á eftir að spila heima gegn Arsenal. Man City verður að vonast til þess að Arsenal misstígi sig í öðrum leikjum.

„Hver sagði það? Henni er ekki lokið. Við töpuðum ekki, þannig henni er ekki lokið og við munum halda áfram,“ sagði Guardiola.

„Andinn og gæðin í liðinu eru ótrúleg og við lögðum ótrúlega mikið á okkur í leiknum í Madríd. Það var betra skipulag á okkur í fyrri og síðan settum við meiri orku í þetta í seinni með þessum ótrúlega hæfileikaríku leikmönnum. Við höfum spilað mun betur í síðustu tveimur leikjum,“ sagði Guardiola sem var upp í stúku í leiknum vegna uppsafnaðra gulra spjalda.

„Það var fullkomið. Ég elska að vera þar.“

„Ég ætla að kvarta meira í dómurunum til að fá fleiri gul spjöld. Ég mun reyna þetta aftur. Þetta var öðruvísi og afslappaðra. Við ræddum síðan saman í hálfleik og í seinni reyndum við að koma leikmönnum með sköpunarmátt í réttar stöður,“
sagði hann ennfremur.

Hann var í símasambandi við Pep Lijnders, aðstoðarmann sinn, en þeir voru vel undirbúnir fyrir leikinn.

„Við hlóðum batteríin fyrir leikinn.“

Man City mun næst mæta Real Madrid í seinni leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar og eftir það mun það halda áfram að reyna saxa á forystu Arsenal.

„Núna munum við ná hvíld og undirbúa okkur fyrir Real Madrid og gefa allt í þetta. Þessir strákar eiga hvíldina skilið. Níu stig er helvíti mikið gegn Arsenal en svona er þetta. Við eigum heimaleik eftir og munum reyna allt fram að síðustu stundu og að sjálfsögðu munum við óska þeim til hamingju þegar möguleikinn er úti, en við verðum alla vega að reyna,“ sagði Guardiola.
Athugasemdir
banner
banner