Fotbolti.net
14.03.26 - 20:27
Brynjar Ingi Erluson
LiveyÍtalski boltinn

Ítalía: Toppliðið fékk á sig umdeilt jöfnunarmark - Endurkoma hjá meisturunum

Rasmus Höjlund skoraði í endurkomusigri Napoli

Rasmus Höjlund skoraði í endurkomusigri Napoli

Canon

Mynd: EPA

Topplið Inter tapaði stigum í titilbaráttunni er liðið gerði 1-1 jafntefli við Atalanta í Seríu A á Ítalíu í dag.
Inter átti möguleika á að ná tíu stiga forystu á toppi deildarinnar og var ansi nálægt því að gera það að veruleika.

Pio Esposito skoraði á 26. mínútu leiksins með föstu skoti vinstra megin úr teignum sem markvörður Atalanta réði ekki við.

Þegar sjö mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma jöfnuðu gestirnir með mjög svo umdeildu marki. Kamaldeen Sulemana virtist brjóta á Denzel Dumfries sem féll í grasið. Sulemana átti síðan skot sem Yann Sommer varði út á Nikola Krstovic sem skoraði.

Markið stóð og urðu lokatölur 1-1. Inter er áfram á toppnum en með átta stiga forystu. Nágrannar þeirra í Milan geta saxað á forystuna á morgun þegar liðið mætir Lazio.

Meistararnir í Napoli unnu 2-1 endurkomusigur á Þóri Jóhanni Helgasyni og félögum í Lecce.

Jamil Siebert kom Lecce í óvænta forystu á 3. mínútu en þeir Rasmus Höjlund og Matteo Politano sneru taflinu við á tuttugu mínútna kafla í síðari hálfleiknum.

Þórir var ónotaður varamaður á bekknum sjötta leikinn í röð og ekki spilað leik síðan hann kom inn á í 2-0 tapi gegn Roma í byrjun árs.

Napoli er í 3. sæti með 59 stig en Lecce í 16. sæti með 27 stig.

Napoli 2 - 1 Lecce
0-1 Jamil Siebert ('3 )
1-1 Rasmus Hojlund ('47 )
2-1 Matteo Politano ('67 )

Inter 1 - 1 Atalanta
1-0 Pio Esposito ('26 )
1-1 Nikola Krstovic ('83 )

Denzel Dumfries kom við sögu í umdeilda jöfnunarmarkinu sem Inter fékk á sig

Denzel Dumfries kom við sögu í umdeilda jöfnunarmarkinu sem Inter fékk á sig

Canon

Mynd: EPA

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio8+1122
2Inter7+1219
3Roma8+1318
4Como8+717
5Milan7+715
6Frosinone7+413
7Torino8+213
8Cagliari8-313
9Napoli8+311
10Juventus7+111
11Atalanta7-19
12Lecce7-39
13Bologna8-28
14Sassuolo8-48
15Monza8-37
16Udinese7-74
17Genoa7-84
18Fiorentina7-94
19Parma8-104
20Venezia7-103
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.