Gamli refurinn Harry Redknapp segist hafa fengið símtal frá Daniel Levy, fyrrum stjórnarformanni Tottenham, fyrir stuttu. Í símtalinu hafi verið rætt um stjórastarfið hjá Spurs.
Levy stjórnaði á bak við tjöldin hjá Spurs í meira en 20 ár en hann hætti störfum í september síðastliðnum.
Levy stjórnaði á bak við tjöldin hjá Spurs í meira en 20 ár en hann hætti störfum í september síðastliðnum.
Hinn 79 ára gamli er einn þeirra sem hafa verið orðaðir við þjálfarastarfið hjá Tottenham til bráðabirgða út tímabilið. Igor Tudor var ráðinn sem bráðabirgðaþjálfari út tímabilið eftir brottrekstur Thomas Frank fyrir mánuði síðan, en núna er talað um að Tudor muni missa starfið.
Redknapp ræddi við TalkSPORT og sagði þar: „Ég fékk símtal í síðustu viku frá Daniel. Ég held ég hafi talað við hann einu sinni frá því ég fór frá Tottenham en ég var í bílnum í síðustu viku og allt í einu hringir hann."
„Mér fannst það skrítið en ég ræddi við hann í hálftíma. Hann sagði mér hvernig viðskilnaður hans var við Tottenham. Og hann sagði svo við mig að hann myndi ráða mig út tímabilið ef hann væri enn þarna."
Redknapp stýrði Tottenham frá 2008 til 2012.
Athugasemdir



