14.04.15 - 16:39
Magnús Már Einarsson
Ásgeir Frank í BÍ/Bolungarvík (Staðfest)

Ásgeir Frank Ásgeirsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ásgeir Frank Ásgeirsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
BÍ/Bolungarvík hefur fengið miðjumanninn Ásgeir Frank Ásgeirsson á láni frá Víkingi R.
,,Þetta er srákur sem er góður í fótbolta. Við erum gríðarlega ánægðir með að fá hann,\" sagði Samúel Samúelsson formaður BÍ/Bolungarvíkur í samtali við Fótbolta.net í dag.

Ásgeir Frank er fæddur árið 1996 og því er hann ennþá gjaldgengur í 2. flokk.
Ásgeir spilaði einn leik í Pepsi-deildinni með Víkingi í fyrra en hann er uppalinn í Fossvoginum.
Í vetur hefur hann spilað talsvert með Víkingi í Lengjubikarnum og Reykjavíkurmótinu.
BÍ/Bolungarvík er að styrkja hópinn fyrir átökin í 1. deildinni í sumar en Junior Prevalus samdi við félagið í morgun.
Á morgun kemur Þjóðverji að nafni Fabian Backhaus til BÍ/Bolungarvíkur á reynslu en hann mun spila tvo leiki með liðinu um helgina.