14.04.15 - 07:00
Hafliði Breiðfjörð
Birkir Björnsson í Aftureldingu (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Afturelding hefur fengið liðsstyrk fyrir átökin í 2. deild í sumar en Birkir Björnsson er kominn til félagsins á láni frá Leikni Reykjavík.
Birkir er 21 árs gamall en hann er fjölhæfur leikmaður sem getur meðal annars spilað á vinstri kanti og miðju.

Birkir er uppalinn hjá Leikni en hann hefur einnig leikið með varaliði félagsins KB.
Í fyrra spilaði hann tvo deildar og bikarleiki með Leikni.
Síðastliðið sumar var Birkir á láni hjá Reyni Sandgerði síðari hluta sumars þar sem hann skoraði þrjú mörk í sjö leikjum.
Birkir spilaði sinn fyrsta leik með Aftureldingu í gær þegar liðið gerði 3-3 jafntefli við Víði Garði í Lengjubikarnum.