Fotbolti.net
14.04.15 - 11:06
Elvar Geir Magnússon

Daninn Jacob Schoop í KR (Staðfest)

Daninn Jacob Schoop í KR (Staðfest)
Canon

Mynd: KR

KR samdi í dag við danska leikmanninn Jacob Schoop, en hann kemur til KR frá danska liðinu OB Odense.

Þetta kemur fram á heimasíðu KR.
Jacob er 26 ára kraftmikill, fljótur og teknískur miðjumaður, útsjónasamur og með góðan vinstri fót samkvæmt síðunni.

Hann kveður OB, þar sem hann hefur leikið 64 leiki í dönsku úrvalsdeildinni, og mun hitta sína nýju liðsfélaga í KR á morgun, þar sem þeir dvelja við æfingar á Spáni.

„KR bindur miklar vonir við innkomu Jacobs í KR liðið og býður hann velkominn í félagið,“ segir á heimasíðu KR.

Komnir í KR:
Hörður Fannar Björgvinsson frá Fram
Kristinn Jóhannesson Magnússon frá Víkingi R.
Pálmi Rafn Pálmason frá Lilleström
Skúli Jón Friðgeirsson frá Elfsborg
Sören Fredriksen frá Aab
Rasmus Christiansen frá Ull/Kisa
Þorsteinn Már Ragnarsson frá Víkingi Ó. (Var í láni)
Jacob Schoop frá OB

Farnir:
Baldur Sigurðsson til SönderjyskE
Egill Jónsson í Víking Ó. á láni
Guðmundur Reynir Gunnarsson í Víking Ólafsvík á láni
Haukur Heiðar Hauksson til AIK
Óskar Örn Hauksson til Edmonton (Á láni)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.