Fotbolti.net
14.04.15 - 10:31
Magnús Már Einarsson

Junior Prevalus í BÍ/Bolungarvík (Staðfest)

Úr leik hjá BÍ/Bolungarvík í fyrra.

Úr leik hjá BÍ/Bolungarvík í fyrra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

BÍ/Bolungarvík hefur samið við Junior Prevalus. Junior er 25 ára gamall en hann kemur frá Haíti.

Junior getur spilað bæði á kanti og í fremstu víglínu en hann skoraði eitt mark og lagði upp annað í æfingaleik með BÍ/Bolungarvík gegn Reyni Sandgerði á dögunum.
Á morgun kemur Þjóðverji að nafni Fabian Backhaus til BÍ/Bolungarvíkur á reynslu en hann mun spila tvo leiki með liðinu um helgina.

Fabian er örvfættur en hann getur spilað bæði sem bakvörður og kantmaður.

Leikmannahópur BÍ/Bolungarvíkur er að mótast fyrir sumarið en miðjumaðurinn Joey Spiviack og markvörðurinn Phil Saunders komu til landsins um páskana og miðjumaðurinn Aaron Walker kemur til landsins eftir helgi.

Þá gæti BÍ/Bolungarvík fengið fleiri nýja leikmenn fyrir keppnina í 1. deild í sumar en félagið er í leit að framherja.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.