14.04.26 - 22:07
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Alexandra: Alltaf gaman í þau fáu skipti sem það gerist
Auglýsing

Alexandra fagnar marki sínu í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Alexandra fagnar marki sínu í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Það er gott að fá þrjú stig," sagði Alexandra Jóhannsdóttir, hetja Íslands, eftir 1-0 sigur gegn Úkraínu í undankeppni HM í kvöld.
„Þetta var skrítinn leikur. Mér fannst vera svæði þarna sem við nýttum okkur ekki. Við fengum ógeðslega mikið af föstum leikatriðum sem við áttum að nýta betur. Ég er bara glöð að ná í þrjú stig."

Lestu um leikinn: Ísland 1 - 0 Úkraína
Alexandra skoraði sigurmarkið í leiknum af miklu harðfylgi.
„Þetta var bara pota honum inn skallamark," sagði Alexandra og hló.
„Það er alltaf gaman að skora í þau fáu skipti sem það gerist. Ég er mjög stolt og ánægð."
Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.