Liverpool og Man Utd vilja Raum - Chelsea og Arsenal eltast við Hall - Verbruggen lítur í kringum sig
   þri 14. apríl 2026 20:30
Brynjar Ingi Erluson
Alexandra tryggði mikilvægan sigur á Úkraínu
Eimskip
Alexandra var hetja Íslands með marki snemma í síðari hálfleiknum
Alexandra var hetja Íslands með marki snemma í síðari hálfleiknum
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Ísland 1 - 0 Úkraína
1-0 Alexandra Jóhannsdóttir ('47 )
Lestu um leikinn

Íslenska kvennalandsliðið vann ótrúlega dýrmætan 1-0 sigur á Úkraínu í undankeppni HM á Laugardalsvelli í kvöld. Alexandra Jóhannsdóttir gerði sigurmarkið í upphafi síðari hálfleiks og leiðir Ísland nú baráttuna um 3. sætið.

Stelpurnar okkar áttu kröftuga byrjun og ógnuðu úkraínska liðinu í byrjun leiks. Vantaði aðeins að fínpússa í sóknarleiknum, en það fór aðeins um þær þegar nítján mínútur voru komnar á klukkuna þegar Roksolana Kravchuk slapp óvænt ein í gegn en Cecilía Rán Rúnarsdóttir las hana eins og opna bók, skutlaði sér í rétt horn og varði örugglega. Algert dauðafæri fyrir gestina.

Ísland náði aftur tökum á leiknum. Glódís Perla Viggósdóttir, sem var að jafna landsleikjametið, átti hörkuskalla sem markvörður Úkraínu varði frábærlega.

Markið lá í loftinu í fyrri hálfleiknum en kom ekki og var jafnt milli liða þegar dómarinn flautaði af.

Þær komu beittar til leiks í þeim síðari og gerðu sigurmarkið þegar rúm mínúta var liðin. Sveindís Jane Jónsdóttir átti lang innkast sem Glódís kom áfram á Alexöndru Jóhannsdóttur sem skallaði boltann í netið af öryggi.

Nokkrum mínútum síðar var Sveindís hársbreidd frá öðru marki en skalli hennar rétt framhjá. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir átti þá aukaspyrnu sem fór í gegnum pakkann og hafnaði í fjærstönginni.

Undir lok leiks gat Alexandra gert annað mark sitt. Sveindís Jane náði að flikka boltanum aftur fyrir sig og inn á teiginn á Alexöndru sem skallaði í átt að marki en gestunum tókst að bjarga á línu.

Níu mínútum var bætt við venjulegan leiktíma þar sem íslenska liðið gaf engin færi á sér og náði að halda þetta nokkuð örugglega út.

Eins marks sigur staðreynd þó hann hefði hæglega getað orðið mun stærri. Hann var engu að síður gríðarlega mikilvægur í baráttu um þriðja sæti riðilsins sem gefur þátttöku í umspil um sæti á heimsmeistaramótið. Ísland er með þrjú stig en Úkraína án stiga í neðsta sætinu.

Næsti leikur Íslands er gegn Evrópumeisturum Englendinga á laugardag, en sá leikur er einnig spilaður á Laugardalsvelli.
Slapp
banner