Liverpool og Man Utd vilja Raum - Chelsea og Arsenal eltast við Hall - Verbruggen lítur í kringum sig
   þri 14. apríl 2026 10:41
Kári Snorrason
Arnar með slitna sin í hné - Allt tímabilið í hættu
Arnar Freyr Ólafsson.
Arnar Freyr Ólafsson.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Arnar og Halldór Snær.
Arnar og Halldór Snær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Freyr Ólafsson, markvörður KR, sleit sin í hné í viðureign KR og Keflavíkur í fyrstu umferð Bestu deildarinnar um helgina.

Arnar bíður nú eftir mati bæklunarlæknis um hvort grípa þurfi til aðgerðar. Að hans mati gæti bataferlið tekið allt að sex mánuði.

„Sinin er slitin en ég er núna að bíða eftir að heyra í bæklunarlækni varðandi næstu skref,“ segir Arnar í samtali við Fótbolta.net.

„Hefði hún ekki slitnað þá hefði ég sennilega ekki farið í aðgerð og þá segja þeir að þetta hefði verið þrír mánuðir. En þar sem hún slitnaði þá býst ég við því að þetta sé alltaf eitthvað í kringum 6 mánuði,“ segir Arnar jafnframt.

Halldór Snær Georgsson kom inn í stað Arnars á sunnudaginn. Hann var aðalmarkvörður KR á síðasta tímabili en Arnar hafði tekið þá stöðu.

Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, sagði í viðtali við Fótbolta.net eftir leikinn gegn Keflavík að liðið þurfi að líta í kringum sig á leikmannamarkaðinum ef illa færi með Arnar.
Slapp
banner