Liverpool og Man Utd vilja Raum - Chelsea og Arsenal eltast við Hall - Verbruggen lítur í kringum sig
   þri 14. apríl 2026 20:31
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Laugardalsvelli
Einkunnir Íslands - Gamla góða uppskriftin
Eimskip
Marki Íslands fagnað.
Marki Íslands fagnað.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Glódís jafnaði leikjametið.
Glódís jafnaði leikjametið.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Cecilía hafði ekki mikið að gera.
Cecilía hafði ekki mikið að gera.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Ísland lagði Úkraínu að velli, 1-0, í rosalega mikilvægum leik í undankeppni HM í kvöld. Það var gamla góða íslenska uppskriftin sem skilaði markinu; langt innkast, flikk og boltanum potað yfir línuna.

Hér fyrir neðan má sjá einkunnir Fótbolta.net úr leiknum.

Lestu um leikinn: Ísland 1 -  0 Úkraína

Cecilía Rán Rúnarsdóttir - 7
Hafði voðalega lítið að gera í leiknum. Varði einu sinni dauðafæri í fyrri hálfleik en sú afgreiðsla var reyndar hörmuleg hjá sóknarmanni Úkraínu.

Guðrún Arnardóttir - 5
Var í miklu brasi með að koma boltanum frá sér, sérstaklega í fyrri hálfleiknum.

Glódís Perla Viggósdóttir - 7 - maður leiksins
Átti stoðsendinguna að markinu og var mjög sterk varnarlega. Jafnaði met Söru Bjarkar Gunnarsdóttur yfir flesta landsleiki fyrir Ísland.

Ingibjörg Sigurðardóttir - 6
Stóð vaktina vel í hjarta varnarinnar, hefði mátt vera rólegri á boltann á köflum.

Sædís Rún Heiðarsdóttir - 5
Lenti í smá vandræðum á köflum en skilaði sínu fínt, ekki mikið að frétta sóknarlega.

Alexandra Jóhannsdóttir - 7
Skoraði markið sem skildi liðin að. Var sterkari í seinni hálfleiknum en þeim fyrri. Hún er gammur í teignum.

Hildur Antonsdóttir - 6
Mikill kraftur í Hildi að venju. Var eins og Alexandra betri í seinni hálfleiknum.

Sveindís Jane Jónsdóttir - 6
Átti innkastið langa sem skilaði markinu. Annars hefur Sveindís oft verið meira áberandi í landsleikjum.

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir - 6
Gerði sitt vel og var með hættulegar spyrnur í föstum leikatriðum.

Thelma Karen Pálmadóttir - 6
Fyrsti landsleikurinn og maður fann fyrir smá sviðsskrekk hjá henni í byrjun leiks. Hún átti fínar rispur en getur meira.

Sandra María Jessen - 5
Svolítið mislagðar fætur fyrir framan markið. Var þó að koma sér í færi sem er jákvætt.

Varamenn:
Linda Líf Boama - 6
Hlín Eiríksdóttir - 6
Emilía Kiær Ásgeirsdóttir - 6
Aðrar spiluðu ekki nóg til að fá einkunn.
Slapp
banner
banner