Guardiola í árs frí og tekur svo við landsliði - Alonso vill sóknarmann Brentford - Bowen eftirsóttur
Alli Jói: Ekki gleyma að þær eru Íslandsmeistarar
Ian Jeffs: Fannst þetta ekki jafn fyrri hálfleikur
Jón Óli um meiðsli og litla breidd: „Það situr gríðarleg þreyta í leikmönnum“
Edith stefnir á A-landsliðið
Matti Guðmunds svekktur: Vantar betri ákvörðunartökur á síðasta þriðjungi
Ingibjörg Lúcía bjargaði stigi: Ekkert viss um að margir komi hérna og sæki stig
Gylfi: Ætla óska eftir því að Ingibjörg Lúcía fari að skora flottari mörk en þetta
Óskar Smári: Á endanum þegar þú bankar svona fast þá hljóta dyrnar að opnast
Anton Ingi svekktur þrátt fyrir fyrsta stigið
FH svaraði áfallinu með stórsigri: Þessi leikur var fyrir Kötlu
Davíð Smári: Það lítur ekki vel út fyrir Jóhann
Gunnar Heiðar: Helvíti langur tími fyrir fótboltaþjálfara
Jóhann Birnir svekktur: Mér fannst þetta ekki vera aukaspyrna
Fannst ekki ganga nógu vel að koma mönnum niður á jörðina eftir leikinn gegn FH
Brynjar Björn: Stór og sterkur og það er eitthvað sem vantaði
Venni: Æðislegt að hann taki þátt í þessu með okkur
Hallgrímur Mar: Loksins kominn í eitthvað stand
Hallgrímur Jónasar: Það býr meira í KA liðinu
Jói Kalli: Stuðningsmenn FH hafa allan rétt á sinni skoðun
Aron Sig: Væri högg fyrir hvert einasta lið
   þri 14. apríl 2026 23:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Laugardalsvelli
Glódís eftir sögulegan leik: Veit það nú ekki alveg
Eimskip
Glódís eftir leikinn í kvöld.
Glódís eftir leikinn í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
„Það er gaman að vinna," sagði Glódís Perla Viggósdóttir, landsliðsfyrirliði, eftir 1-0 sigur gegn Úkraínu í afar mikilvægum leik í undankeppni HM í kvöld.

„Þetta var skyldusigur. Við vissum að þetta var leikur sem við þyrftum að vinna til að vera í sem bestri stöðu til að komast inn á HM sem er draumur hjá okkur."

Lestu um leikinn: Ísland 1 -  0 Úkraína

Þetta var sögulegur leikur fyrir Glódísi sem er núna búin að jafna Söru Björk Gunnarsdóttur í leikjafjölda fyrir landsliðið. Hún kemur til með að bæta metið þegar hún spilar sinn 146. landsleik gegn Englandi á laugardaginn.

„Það er virkilega gaman að vera komin upp við hlið Söru sem er goðsögn í íslenskum fótbolta. Ég lærði mikið af henni, fékk að spila með henni í mörg ár. Það er virkilega gaman að vera komin upp við hlið hennar," sagði Glódís.

Fyrirliðinn okkar á enn nóg eftir, er hún farin að horfa í 200 leikina. „Ég veit það nú ekki alveg," sagði Glódís og hló. „Maður verður að sjá hvernig þetta þróast. Það er alltaf jafnmikill heiður að spila fyrir Íslands hönd."

Viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner