Fotbolti.net
14.04.26 - 18:58
Brynjar Ingi Erluson

Glódís Perla jafnaði landsleikjametið

Glódís Perla er nú landsleikjahæst ásamt Söru Björk

Glódís Perla er nú landsleikjahæst ásamt Söru Björk

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins, er búin að jafna landsleikjametið en hún er í byrjunarliðinu sem er að spila við Úkraínu á Laugardalsvelli.
Lestu um leikinn: Ísland 1 - 0 Úkraína
Leikur Íslands og Úkraínu var flautaður á klukkan 18:30 og þá náði Glódís þeim merka áfanga að spila sinn 145. landsleik í landsliðstreyjunni.

Sara Björk Gunnarsdóttir var handhafi metsins en hún lagði landsliðsskóna á hilluna árið 2023. Glódís hefur síðan þá verið að elta metið og hefur nú jafnað það.

Magnað afrek hjá Glódísi sem er ein sú allra besta í sögu Íslands, en um helgina getur hún slegið metið er Ísland tekur á móti Englendingum á Laugardalsvelli.

Glódís er þrítug og lék sinn fyrsta A-landsleik gegn Skotlandi árið 2012.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.