Íslenska kvennalandsliðið mætir því úkraínska í spennandi leik á Laugardalsvelli sem gæti ráðið úrslitum um hvor þjóðin endar í þriðja sæti undanriðilsins fyrir HM í Brasilíu á næsta ári.
Ísland og Úkraína eru í gífurlega erfiðum undanriðli ásamt Englandi og Spáni sem eigast einnig við í dag. England og Spánn eru tvær af allra sterkustu fótboltaþjóðum heims í kvennaboltanum í dag og sáu hvorki Ísland né Úkraína til sólar í fyrstu tveimur umferðunum gegn þeim.
Þjóðin sem endar á toppi riðilsins tryggir sér þátttökurétt á HM en 2.-4. sætin fara í umspilskeppni. Þar gæti skipt máli hvort Ísland endar í þriðja eða fjórða sæti enda er þjóðum raðað í umspilsleiki eftir árangri.
Þetta verður í fjórða sinn sem Ísland mætir Úkraínu í keppnisleik í kvennaflokki en hingað til hefur Ísland unnið naumlega tvisvar sinnum og einu sinni skildu þjóðirnar jafnar. Leikirnir hafa hingað til verið afar fjörugir og er markatalan samtals 8-6 fyrir Stelpurnar okkar.
Ísland spilar svo heimaleik við stjörnum prýtt lið Englands á laugardaginn.
Síðar í kvöld eigast Álftanes og RB við í C-deild Lengjubikars karla.
Landslið kvenna - Undankeppni HM, Riðill 3
18:00 England-Spánn (Wembley)
18:30 Ísland-Úkraína (Laugardalsvöllur)
Lengjubikar karla - C-deild, riðill 2
20:00 Álftanes-RB (HTH völlurinn)
Landslið kvenna - Undankeppni HM, Riðill 3
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. England | 2 | 2 | 0 | 0 | 8 - 1 | +7 | 6 |
| 2. Spánn | 2 | 2 | 0 | 0 | 6 - 1 | +5 | 6 |
| 3. Ísland | 2 | 0 | 2 | 0 | 0 - 5 | -5 | 0 |
| 4. Úkraína | 2 | 0 | 2 | 0 | 2 - 9 | -7 | 0 |



