Fotbolti.net
14.04.26 - 22:32
Snæbjört Pálsdóttir

Karólína Lea: Ég er eins og einhver stolt mamma þegar ég sé hana

Auglýsing
Karólína Lea var stolt af Thelmu Karen eftir leikinn

Karólína Lea var stolt af Thelmu Karen eftir leikinn

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir var ánægð eftir 1-0 sigur Íslands á Úkraínu. Það var ekki síður augljóst hversu stolt hún var af samherja sínum, Thelmu Karen Pálmadóttur sem kom inn í byrjunarliðið í fyrsta skiptið. 

„Mjög sátt, gerðum oft mjög vel. Eitt mark sýnir kannski ekki alveg hvernig leikurinn var en þrjú stig," sagðí Karólína Lea eftir leik.

Lestu um leikinn: Ísland 1 - 0 Úkraína

Völlurinn leit út fyrir að vera þungur og blautur og hafði aðeins áhrif á sóknarleik okkar kvenna. 

„Ísland í apríl er bara svona og við þurfum bara að taka því. Völlurinn var betri en ég bjóst við, það er ekkert út á hann að setja."

Hin unga og efnilega Thelma Karen Pálmadóttir  var í fyrsta skiptið í byrjunarliðinu í kvöld og var Karólína mjög stolt af sinni konu. 

„Bara geggjað að sjá hana, ég hef alltaf vitað af henni. Ég þjálfaði hana þegar hún var í einhverjum fótboltaskóla í FH. Ég er eins og einhver stolt mamma þegar ég sé hana. Ekkert smá gaman að spila með henni og hrikalega stolt af henni. 

Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.