Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 14. maí 2021 19:47
Brynjar Ingi Erluson
Svíþjóð: Glódís hafði betur gegn Andreu
Glódís Perla í leik með íslenska landsliðinu
Glódís Perla í leik með íslenska landsliðinu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rosengård FC lagði Växjö FF að velli, 1-0, er liðin mættust í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Rosengård er með fullt hús stiga eftir fyrstu fimm leikina.

Glódís Perla Viggósdóttir var í byrjunarliði Rosengård og lék allan leikinn í hjarta varnarinnar. SIgurmarkið gerði Olivia Schough eftir aðeins þrettán mínútur.

Andrea Mist Pálsdóttir kom inná sem varamaður hjá Växjö í hálfleik en þær eru samherjar í íslenska landsliðinu.

Eins og áður segir þá er Rosengård með fullt hús stiga eftir fyrstu fimm leikina og situr á toppnum en Växjö hefur tapað fjórum leikjum og gert eitt jafntefli.
Athugasemdir
banner
banner