Fotbolti.net
14.05.26 - 17:08
Brynjar Ingi Erluson

Elías Rafn bikarmeistari í Danmörku

Elías Rafn er bikarmeistari með Midtjylland

Elías Rafn er bikarmeistari með Midtjylland

Canon

Mynd: EPA

Elías Rafn Ólafsson og félagar hans í Midtjylland eru danskir bikarmeistarar eftir að hafa lagt FCK að velli, 1-0, á Parken í dag.
Landsliðsmarkvörðurinn stóð á milli stanganna hjá Midjylland á meðan hinn 17 ára gamli Viktor Bjarki Daðason var fremstur hjá FCK. Rúnar Alex Rúnarsson var á bekknum hjá FCK.

Viktor Bjarki kom sér í sögubækurnar hjá danska stórliðinu, en hann varð yngsti leikmaðurinn til að spila í bikarúrslitum.

Elías Rafn átti tvær flottar markvörslur í fyrri hálfleiknum frá Mohamed Elyounoussi og Viktori Bjarka.

Annars var jafnræði með liðunum. Mikil ákefð og fullt af brotum, en vantaði aðeins upp á herslumuninn.

Viktor Bjarki fór af velli á 76. mínútu og aðeins nokkrum mínútum síðar gerði Midtjylland sigurmarkið er Han-Beom Lee stangaði boltanum í netið eftir fast leikatriði.

FCK pressaði á lokamínútum leiksins en án árangsur. Midtjylland er bikarmeistari í þriðja sinn í sögunni og er þetta annar bikarmeistaratitill Elíasar með félaginu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.