Gordon samþykkir að ganga í raðir Bayern - Chelsea og Man Utd vilja liðsfélaga Orra - Greenwood áfram hjá Marseille
   fim 14. maí 2026 20:31
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Höddi Magg líkir FH við Liverpool undir stjórn Souness
Hörður Magnússon
Hörður Magnússon
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jóhannes Karl Guðjónsson
Jóhannes Karl Guðjónsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH fékk skell gegn Fylki í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í dag. FH var með skýra stefnu fyrir tímabilið þegar Jóhannes Karl Guðjónsson tók við. Það átti að yngja liðið upp.

FH er dottið úr leik í bikarnum og hefur aðeins safnað tveimur stigum í fyrstu sex leikjunum í deildinni. FH-ingurinn og Liverpool maðurinn Hörður Magnússon líkti ástandi FH við gamla tíma hjá Liverpool í Bikarkvöldi á RÚV í kvöld. Hann saknaði þess að heyra Jóa Kalla biðja stuðningsmenn FH afsökunnar á frammistöðunni í dag.

„Menn tala um að þetta hafi verið versta frammistaða FH í aldarfjórðung, ég veit það nú ekki. Þessi vegferð sem var lagt upp með að yngja upp liðið og þar frameftir götunum. Maður setur stórt spurningamerki við það hvort þetta sé að gerast of hratt, ekki nógu lífrænt," sagði Höddi sem bætti við að það yrði ekki dauðadómur fyrir FH að falla.

„Til dæmis fyrir þessa ungu stráka í dag. Þeir hefðu þurft eldri menn með sér. Ég ætla að nefna dæmi með Liverpool, Graeme Souness tók við Liverpool á sínum tíma ('91-'94) og hann hefur sagt eftir á að vitleysurnar sem hann gerði var að yngja liðið upp alltof hratt og henda út reyndari leikmönnum sem áttu eitt til tvö ár eftir."

„Það voru stærstu mistök sem hann gerði í stjóratíð sinni því hann er einn besti leikmaður í sögu félagsins en verður alltaf minnst sem misheppnaður knattspyrnustjóri. Þetta sagði hann þá og ég held að þetta eigi við um það sem er að gerast hjá FH," sagði Höddi að lokum.

Gunnar Birgisson var einnig í settinu á RÚV.

„Það á að horfa á þetta frá víðara samhengi. Leikmannasölur frá FH hafa verið af skornum skammti. Það er lykilleikmaður sem hættir á síðasta ári sem heitir Björn Daníel Sverrisson sem var máttarstólpi í liðinu. Spurningamerki sem ég set er að hleypa Böðvari Böðvarssyni upp á Akranes. Hefði klárlega þurft að setja meiri metnað í það að halda honum í Kaplakrika," sagði Gunni.

„Meðalaldurinn er 22 ár í dag. Það er miklu nær því sem maður sér í Norðurlöndunum. Það er ekkert launungarmál að það kreppir í hérna heima, auðvitað nær það líka til íþróttafélagana. Það eru ekki botnlausir vasar sem félögin geta leitað í til að sækja málaliða erlendis sem koma til að spila eitt til tvö tímabil. Það er ekki alltaf hægt að fara í fljótlegar lausnir. Stundum þarftu að þjálfa liðið og búa til leikmenn. Myndu þeir fá tækifæri ef þeir væru með Spánverja eða Dani á vængjunum eða á miðsvæðinu?"
Jói Kalli tekur ábyrgð: Eitt að tapa leik en annað á þennan hátt
Slapp
banner
banner