Ævintýrin gerast í Mjólkurbikarnum, en Grótta og Ægir eru komin áfram í 8-liða úrslit. Vestri og KA, bikarmeistarar síðustu tveggja ára, eru bæði úr leik.
Grótta skellti Vestra, 4-0, á Kerecis-vellinum á Ísafirði.
Gestirnir voru að hóta í byrjun leiks og þegar rúmar fimmtán mínútur voru liðnar fengu þeir vítaspyrnu er Andri Freyr Jónasson var tekinn niður í teignum. Grímur Ingi Jakobsson skoraði úr vítinu.
Björgvin Brimi Andrésson og Tristan Freyr Ingólfsson gengu algerlega frá bikarmeisturunum undir lok fyrri hálfleiks. Björgvin bætti við öðru marki Gróttu á 35. mínútu eftir fyrirgjöf Gríms og þá skoraði Tristan Freyr tvö mörk á þremur mínútum með aukaspyrnu sem fór undir vegginn og í netið og annað með laglegu skoti fyrir utan teig.
Daniel Badu, þjálfari Vestra, fékk rauða spjaldið í hálfleik fyrir ólæti í klefanum.
Vestri fékk færi til að minnka muninn í þeim síðari. Breki Þór Hermannsson átti skot í slá og síðan aukaspyrnu sem fór rétt framhjá.
Grótta fagnaði 4-0 sigri og er komin áfram í 8-liða úrslit. Lengjudeildarlið Ægis fer með þeim þangað eftir að hafa unnið óvæntan 2-1 sigur á KA.
Harley Willard skoraði gegn sínum gömlu félögum á 17. mínútu eftir smá bras í vörn KA.
Ægismenn náðu í annað mark á 23. mínútu er Nikola Kristinn Stojanovic skoraði eftir hornspyrnu. Boltanum var komið yfir allan pakkann og á Nikola sem skoraði hann utan úr teignum.
Jakob Héðinn Róbertsson minnkaði muninn fyrir KA á 31. mínútu. Hallgrímur Mar Steingrímsson kom boltanum inn á teiginn á Jakob sem stýrði honum framhjá Ómari í markinu.
Frammistaða Ægis var aðdáunarverð. Liðið varðist vel en á sama tíma fóru KA-menn illa með dauðafæri. Nokkrum sinnum tókst Ægi að bjarga á línu.
Á 83. mínútu vildu Ægismenn fá vítaspyrnu er Kristinn Ásgeir Þorbergsson féll í teignum, en ekkert dæmt.
Þrátt fyrir mikla pressu tókst KA ekki að ná í annað markið og er það Ægir sem fer í 8-liða úrslit en KA er úr leik.
Dregið verður í 8-liða úrslit bikarsins eftir leik Fylkis og FH, en drátturinn verður í beinni útsendingu á RÚV2 og hefst 16:55.
Vestri 0 - 4 Grótta
0-1 Grímur Ingi Jakobsson ('17 , víti)
0-2 Björgvin Brimi Andrésson ('35 )
0-3 Tristan Freyr Ingólfsson ('40 )
0-4 Tristan Freyr Ingólfsson ('43 )
Rautt spjald: Daniel Osafo-Badu, Vestri ('46) Lestu um leikinn
KA 1 - 2 Ægir
0-1 Harley Bryn Willard ('17 )
0-2 Nikola Kristinn Stojanovic ('23 )
1-2 Jakob Héðinn Róbertsson ('31 )
Lestu um leikinn


