Aganefnd ensku EFL-deildarinnar mun taka fyrir njósnamálið stóra á næstu dögum en þetta kemur fram í tilkynningu sambandsins.
Middlesbrough gómaði starfsmann Southampton horfa á og taka upp æfingu liðsins.
Njósnarinn á í kjölfarið að hafa skipt um föt og látið sig hverfa af svæðinu, en mynd af starfsmanninum hefur verið birt í fjölmiðlum og er málið til rannsóknar hjá EFL-sambandinu.
Það senti frá sér yfirlýsingu í dag þar sem það sagði málið fara fyrir nefnd eigi síðar en 19. maí.
EFL segir þá stuðningsmenn beggja liða að vera meðvitaða um mögulega breytingu á úrslitaleiknum vegna niðurstöðu málsins, en leikurinn er settur á 23. maí á Wembley.
Möguleiki er á því að Southampton verður dæmt úr leik og mun þá Middlesbrough taka sætið.
Andstæðingurinn er Hull City sem vann Millwall í hinu undanúrslitaeinvíginu.




