Gordon samþykkir að ganga í raðir Bayern - Chelsea og Man Utd vilja liðsfélaga Orra - Greenwood áfram hjá Marseille
   fim 14. maí 2026 21:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Tæki afsökunarbeiðninni í dag: Myndi brosa og heilsa honum
Kvenaboltinn
'Ef það gengur eftir, þá hef ég mikla trú á að við tökum miðann í 8-liða úrslit með okkur suður'
'Ef það gengur eftir, þá hef ég mikla trú á að við tökum miðann í 8-liða úrslit með okkur suður'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Það fer mjög vel um stelpurnar á Hótel Varmahlíð og þær mæta eldklárar til leiks'
'Það fer mjög vel um stelpurnar á Hótel Varmahlíð og þær mæta eldklárar til leiks'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Skaphundurinn í mér var bara ekki kominn niður og því samþykkti ég ekki þá afsökun sem kom til mín áður en ég fór í viðtalið'
'Skaphundurinn í mér var bara ekki kominn niður og því samþykkti ég ekki þá afsökun sem kom til mín áður en ég fór í viðtalið'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þór/KA er með tvö stig eftir fjóra leiki en Stjarnan er með fjögur stig.
Þór/KA er með tvö stig eftir fjóra leiki en Stjarnan er með fjögur stig.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan heimsækir Þór/KA í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins á morgun. Liðin mætast á VÍS-vellinum á Akureyri og hefst leikurinn klukkan 18:00.

Liðin mættust fyrir rúmri viku í Bestu deildinni og þá endaði leikurinn með 2-2 jafntefli. Fótbolti.net ræddi við Óskar Smára Haraldsson, þjálfara Stjörnunnar, fyrir leikinn.

„Leikurinn leggst mjög vel í mig. ég á von á hörku leik, rétt eins og deildarleikurinn var. Við þurfum að halda áfram að gera rétta hluti til að koma okkur í marktækifærin og binda endahnútinn á sóknirnar okkar betur en við gerðum gegn þeim í deildinni. Ef það gengur eftir, þá hef ég mikla trú á að við tökum miðann í 8-liða úrslit með okkur suður," segir Óskar Smári.

Gist í Varmahlíð
Hvernig er staðan á hópnum?

„Staðan á hópnum er bara góð. Það er spilað þétt og við eins og önnur lið höfum þurft að díla við skakkaföll og meiðsli, en ég hef sagt það oft áður að við erum með stóran og góðan hóp og við leysum þau fráföll sem verða bara vel. Þannig staðan á hópnum er bara góð, það fer mjög vel um stelpurnar á Hótel Varmahlíð og þær mæta eldklárar til leiks."

Eins og skáldið sagði
Hvernig líður Óskari með fyrstu þrjá leikina í Bestu deildinni?

„Mér líður allt í lagi með byrjunina. Við spiluðum algjöran 50/50 leik að mínu mati gegn Víkingi í fyrsta leik þar sem Víkingar höfðu betur. Spilum vel gegn Val í fyrsta heimaleik og svo stóran hluta af leiknum gegn Þór/KA vorum við mjög flottar, þrátt fyrir að tapa niður tveggja marka forystu. Svo kom síðasti leikur gegn FH þar sem við vorum í miklum vandræðum í fyrri hálfleik og í raun eigum ekki skilið neitt úr þeim leik - en það er bara áfram gakk eins og skáldið sagði. Hefði viljað vera með fleiri stig, en það eru ennþá fullt af stigum í pottinum. Við þurfum bara að halda áfram að taka einn leik í einu og halda áfram að vinna í okkar leik og verða betri."

Uppákoma sem vakti athygli
Í lok leiks gegn Þór/KA í deildinni, eftir að heimakonur höfðu jafnað leikinn í uppbótartíma, varð uppákoma við hliðarlínuna þar sem gæslumaður á VÍS-vellinum ögraði Óskari Smára og var í kjölfarið vikið af svæðinu. Óskar ræddi atvikið eftir síðasta leik og sagði þá að hann hefði ekki tekið afsökunarbeiðni gæslumannsins.

En hvernig horfir atvikið við honum í dag og hvað myndi Óskar segja við gæslumanninn ef hann hittir hann á morgun?

„Atvikið horfir bara ennþá svipað við mér, bara dónaskapur í raun og veru. En ég erfi ekkert og í raun myndi ég samþykkja afsökunarbeiðnina í dag ef hún kæmi aftur, þar sem þessi einstaklingur var meiri maður en margur annar og beið eftir mér eftir leik til að biðja mig afsökunar."

„Skaphundurinn í mér var bara ekki kominn niður og því samþykkti ég ekki þá afsökun sem kom til mín áður en ég fór í viðtalið við Vísi."

„Ef ég myndi rekast á hann á morgun að þá myndi ég sennilega bara brosa og heilsa honum, engin ástæða til neins annars,"
segir Óskar Smári.


Slapp
banner
banner
banner