Fotbolti.net
14.05.26 - 15:12
Elvar Geir Magnússon

Verið að niðurlægja bikarmeistarana og þjálfarinn með rautt

Badu tók við Vestra í vetur.

Badu tók við Vestra í vetur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
Bikarmeistarar Vestra eru að leika gegn Gróttu í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins og eru 0-4 undir á heimavelli sínum á Ísafirði þegar þessi frétt er skrifuð.

Þannig var staðan í hálfleik en bæði þessi lið leika í Lengjudeildinni, þar sem Grótta er nýliði en Vestri féll úr Bestu deildinni í fyrra.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum
Tristan Freyr Ingólfsson hefur skorað tvö mörk fyrir Gróttu en Björgvin Brimi Andrésson og Grímur Ingi Jakobsson eru einnig komnir á blað.

Daniel Badu þjálfari Vestra fékk rautt spjald frá Jóhanni Inga Jónssyni dómara í hálfleiknum.

Líklega fyrir mikil ólæti inni í húsi samkvæmt Kristjáni Hrafni Kristjánssyni sem textalýsir fyrir Fótbolta.net. Badu tók við Vestra í vetur en hann er fyrrum leikmaður liðsins og var aðstoðarmaður Davíðs Smára Lamude sem stýrði liðinu til bikarmeistaratitilsins.

Dregið verður í 8-liða úrslit seinna ´idag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.