þri 14. júní 2016 22:24
Daníel Rúnarsson
Ronaldo: Ísland mun aldrei vinna neitt
Icelandair
Cristiano Ronaldo í leiknum í kvöld
Cristiano Ronaldo í leiknum í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson
Cristiano Ronaldo aðalstjarna Portúgals var afar ósáttur eftir 1-1 jafntefli við Ísland í kvöld og vandaði strákunum okkar ekki kveðjuna.

„Þeir fögnuðu eins og þeir hefðu unnið Evrópumótið. Það er hugsunarháttur þess litla. Þess vegna munu þeir aldrei vinna neitt," sagði Ronaldo.

Ronaldo lagði upp mark Portúgala, sem Nani skoraði, en fékk tækifæri undir lok leiksins til að stela sigrinum fyrir Portúgal en brást bogalistin.

Sjá einnig:
Ronaldo tók ekki í íslenskar hendur
Athugasemdir
banner
banner