Copa America hófst í gærkvöldi og heldur mótið áfram að rúlla í kvöld.
Copa America var án gestgjafa 13 dögum fyrir mót. Mótið átti að fara fram í Argentínu og Kólumbíu, en það þurfti að færa það. Kólumbía missti gestgjafaréttinn vegna mikilla og harðra mótmæla í garð ríkisstjórnar landsins. Covid-19 ástandið í Argentínu er sérstaklega slæmt og því var ákveðið að færa það þaðan. Mótið fer fram í Brasilíu.
Lionel Messi og félagar í Argentínu mæta til leiks. Þeir eiga erfiðan leik við Síle. Leikurinn hefst klukkan 21:00.
Svo mætast Kólumbía og Ekvador á miðnætti, en leikirnir eru sýndir á Viaplay.
mánudagur 14. júní
COPA AMERICA: Group A
21:00 Argentína - Síle
COPA AMERICA: Group B
00:00 Kólumbía - Ecuador
Athugasemdir