Sænski framherjinn Alexander Isak var nálægt því að koma Svíþjóð yfir undir lok fyrri hálfleiks gegn Spánverjum en heimamenn náðu að bjarga á línu.
Spánverjar hafa verið með yfirburði í leiknum til þessa. Dani Olmo og Alvaro Morata fengu tvö dauðafæri en Robin Olsen varði skalla frá Olmo og lokaði þá vel á Morata í seinna færinu.
Undir lok fyrri hálfleiks fékk Isak þó tækifæri til að koma Svíum yfir en hann keyrði inn hægra megin í teignum. Hann reyndi skot sem fór af varnarmanni og aftur á hann en síðara rataði á markið.
Marcos Llorente, sem er margt til lista lagt, var mættur á línuna og sparkaði boltanum í stöng og barst boltinn aftur á Unai Simon sem greip hann.
Hægt er að sjá atvikið hér fyrir neðan.
Sjáðu björgunina hér
Athugasemdir