Fotbolti.net
14.07.15 - 18:00
Magnús Már Einarsson

Björn Axel í Njarðvík (Staðfest)

Björn Axel Guðjónsson.

Björn Axel Guðjónsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Njarðvík hefur fengið sóknarmanninn Björn Axel Guðjónsson til liðs við sig frá Gróttu.

Björn Axel er uppalinn hjá Gróttu en hann lék einnig með KFR árið 2012 og KFS árið 2013.

Í fyrra skoraði hann síðan tólf mörk í sautján leikjum með Njarðvík í 2. deildinni.
Í sumar hefur Björn komið við sögu í fjórum leikjum í 1. deildinni með Gróttu.

Björn Axel fær leikheimild með Njarðvík þegar félagaskiptaglugginn opnar á morgun og hann gæti spilað sinn fyrsta leik gegn Hetti á laugardag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.