Fotbolti.net
14.07.15 - 21:37
Alexander Freyr Tamimi

Brasilísk landsliðskona í Stjörnuna (Staðfest)

Francielle er komin í Stjörnuna.

Francielle er komin í Stjörnuna.

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennaboltinn
Íslandsmeistarar Stjörnunnar hafa fengið til sín liðsstyrk í formi brasilísku landsliðskonunnar Francielle Manolo Alberto.

Francielle á að baki fjölda landsleikja fyrir Brasilíu en var ekki í leikmannahópnum sem tók þátt í HM kvenna í Kanada í sumar. Hún kom þó við sögu í öllum leikjum Brasilíu á HM 2011. Þá skoraði hún mark þegar hún lék með Brasilíu á Ólympíuleikunum í Lundúnum árið 2012.
Francielle er miðjumaður og hefur spilað bæði í heimalandinu og Bandaríkjunum. Hún hefur tvisvar sinnum unnið Meistaradeild Suður Ameríku, með Santos og Sao Jose, og þá hefur hún einnig unnið brasilísku deildina og bikarinn.

Stjarnan er ríkjandi Íslands- og bikarmeistari og er liðið í 2. sæti Pepsi-deildar kvenna, fjórum stigum frá toppliði Breiðabliks.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.