14.07.15 - 18:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jenkinson framlengir við Arsenal - Lánaður strax til West Ham (Staðfest)

Jenkinson fer aftur til West Ham

Mynd: Getty Images

Jenkinson fer aftur til West Ham

Mynd: Getty Images
Bakvörðurinn, Carl Jenkinson, hefur verið lánaður til West Ham að nýju, en hann skrifaði undir langtímasamning við Arsenal í leiðinni.
Hinn 23 ára gamli Jenkinson lék 32 deildarleiki á síðasta tímabili fyrir West Ham.
Hinn 23 ára gamli Jenkinson lék 32 deildarleiki á síðasta tímabili fyrir West Ham.
\"Ég er mjög ánægður að vera kominn aftur til West Ham. Ég get varla beðið,\" sagði Jenkinson.
Jenkinson, sem kom til Arsenal árið 2011 frá Charlton, var á eftir Mathieu Debuchy, Calum Chambers og Hector Bellerin í goggunarröðinni hjá Arsenal.
West Ham ætlar sér stóra hluti undir stjórn Slaven Bilic, en Jenkinson er sjötti leikmaðurinn sem hann fær til liðsins.

Heimild: BBC