14.07.15 - 16:06
Magnús Már Einarsson
Raheem Sterling til Manchester City (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Manchester City hefur keypt Raheem Sterling frá Liverpool á 49 milljónir punda.
Sterling fór í læknisskoðun hjá City í dag og hann hefur nú skrifað undir samning hjá félaginu.
Hann er dýrasti enski leikmaðurinn í sögunni og dýrasti leikmaður í heimi undir 21 árs.

„Hann er ungur leikmaður með stórkostlega hæfileika og ég er viss um að stuðningsmenn Manchester City bíða spenntir eftir að sjá hann spila með liðinu,\" sagði Manuel Pellegrini stjóri Manchester City.
Sterling mun spila í treyju númer 7 hjá Manchester City en hann er nú á leið til Ástralíu þar sem félagið er í æfingaferð.
Sterling kom til Liverpool 15 ára gamall frá QPR árið 2010. Hann spilaði sinn fyrsta leik með aðalliðinu árið 2012.
Þessi enski landsliðsmaður vildi ekki gera nýjan samning við Liverpool fyrr á árinu og undanfarnar vikur hefur hann látið skýrt í ljós að hann vilji fara frá félaginu.