Fotbolti.net
14.07.15 - 13:32
Elvar Geir Magnússon

Robin van Persie til Fenerbahce (Staðfest)

Van Persie er farinn úr enska boltanum.

Van Persie er farinn úr enska boltanum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fenerbahce í Tyrklandi hefur staðfest að hollenski sóknarmaðurinn Robin van Persie sé orðinn leikmaður liðsins. Van Persie kemur frá Manchester United.
Samningur hans er til fjögurra ára en Fenerbahce hafnaði í öðru sæti í tyrknesku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili, þremur stigum frá meisturunum í Galatasaray.

Van Persie er 31 árs gamall en hann náði ekki flugi á síðasta tímabili á Old Trafford.

Hann var þrjú ár hjá United og raðaði inn mörkum á sínu fyrsta tímabili hjá félaginu þar sem það hampaði Englandsmeistaratitlinum.

Hann er annar leikmaðurinn sem Fenerbache fær frá United í sumar en áður hafði félagið keypt portúgalska vængmanninn Nani.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.