14.07.15 - 09:30
Magnús Már Einarsson
Rússar reka Capello (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Fabio Capello hefur verið rekinn úr starfi sem landsliðsþjálfari Rússa.
Hinn 69 ára gamli Capello skrifaði undir nýjan fjögurra ára samning í fyrra og átti að stýra Rússum fram yfir HM 2018 sem verður haldið þar.
Eftir átta stig í sex leikjum í undankeppni EM hefur Capello hins vegar fengið að taka pokann sinn.
Capello náði heldur ekki góðum árangri á HM í fyrra þar sem Rússr unnu ekki leik.

Samkvæmt fréttum frá Rússlandi þá fékk Capello fínasta starfslokasamning en hann hljóðar upp á 10,7 milljónir punda.