Fotbolti.net
14.07.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

3. deild: Þrjú Jordan-mörk í Fagralundi - Markalaust í Garði

Jordan Smylie skoraði tvö fyrir Reyni og er næst markahæstur í deildinni

Jordan Smylie skoraði tvö fyrir Reyni og er næst markahæstur í deildinni

Canon

Mynd: Reynir Sandgerði

Reynir Sandgerði vann góðan 3-1 sigur á Árbæ í 3. deild karla í Fagralundi í gær.
Jordan Smylie kom Sandgerðinum í tveggja marka forystu á rúmum hálftíma.

Nafni hans, Jordan Chase Tyler, minnkaði muninn fyrir Árbæ þegar stundarfjórðungur var eftir áður en Sigurður Orri Ingimarsson tryggði gestunum stigin þrjú.

Sandgerðingar eru í 4. sæti með 23 stig á meðan Árbær er í neðsta sæti með aðeins 5 stig.

Topplið Víðis gerði markalaust jafntefli við Augnablik á Nesfisk-vellinum í Garði.

Víðismenn áttu möguleika á því að ná þriggja marka forystu á Tindastól í titilbaráttunni, en fóru illa að ráði sínu gegn Augnablik sem hefur aðeins unnið fjóra leiki á tímabilinu.

Víðir er á toppnum með 26 stig, einu stigi meira en Tindastóll á meðan Augnablik er í 8. sæti með 15 stig.

Úrslit og markaskorarar:

Árbær 1 - 3 Reynir S.
0-1 Jordan Smylie ('11 )
0-2 Jordan Smylie ('31 )
1-2 Jordan Chase Tyler ('74 )
1-3 Sigurður Orri Ingimarsson ('84 )

Víðir 0 - 0 Augnablik

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víðir16+2233
2Reynir S.16+1832
3KH16+2531
4Tindastóll16+1231
5KV16+429
6Höttur16+122
7KF16-521
8Augnablik16-518
916-2316
10Ýmir16-1215
11Sindri16-1614
12Árbær16-218
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.