Fotbolti.net
13.07.26 - 21:20
Brynjar Ingi Erluson

Besta deildin: Kiddi Jóns með sigurmarkið í endurkomu Blika

Kristinn Jónsson skoraði sigurmarkið undir lok leiksins

Kristinn Jónsson skoraði sigurmarkið undir lok leiksins

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik 2 - 1 Keflavík
0-1 Alpha Conteh ('24 )
1-1 Jónatan Guðni Arnarsson ('57 )
2-1 Kristinn Jónsson ('89 )
Lestu um leikinn
Breiðablik vann frábæran 2-1 endurkomusigur á Keflavík í 14. umferð Bestu deildar karla á Eikarvelli í kvöld.

Blikar lentu undir á 24. mínútu. Þeir höfðu kallað eftir tveimur vítaspyrnum á mínútunum á undan en náðu ekki að hreyfa við Arnari Þór Stefánssyni, dómara leiksins.

Alpha Conteh, sem hefur verið frábær í undanförnum leikjum með Keflvíkingum, kom gestunum yfir með laglegu skoti fyrir utan teig. Þetta var annað mark hans í síðustu þremur leikjum.

Marin Mudrazija setti boltann í netið níu mínútum síðar, en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Það var mjög umdeildur dómur, enda virtist Mudrazija alls ekki vera rangstæður.

Keflvíkingar vildu einnig fá vítaspyrnu en fengu ekki og Blikar fengu síðan dauðafæri hinum megin. Fyrri hálfleikurinn var viðburðaríkur, en það voru Keflvíkingar sem fóru með forystu inn í hálfleikinn og voru líklegri til að bæta við í upphafi þess síðari.

Þorlákur Breki Baxter átti skot sem Anton Ari Einarsson varði og Stefan Ljubicic átti einnig skot framhjá.

Blikar unnu sig þó jafnt og þétt aftur inn í leikinn og jöfnuðu á 57. mínútu. Það gerði Jónatan Guðni Arnarsson upp úr engu. Hann fékk boltann utarlega vinstra megin í teignum og klíndi honum í fjærhornið.

Það var skellur fyrir Keflvíkinga, sem höfðu verið betri aðilinn, og undir lok leiks varð kvöldið enn súrara fyrir gestina.

Dagur Örn Fjeldsted átti þá fyrirgjöf frá hægri yfir vörnina og boltinn datt fyrir Kristinn Jónsson, sem setti hann í hægra hornið.

Það reyndist sigurmarkið. Blikar sýndu karakter, komu til baka og lönduðu stigunum þremur, en þetta var ótrúlega svekkjandi tap fyrir Keflavík.

Breiðablik er í 4. sæti með 25 stig en Keflavík í 6. sæti með 16 stig.
Úr leiknum í kvöld

Úr leiknum í kvöld

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.14+3940
2KR15+1732
3Fram14+1230
4Breiðablik14+825
5Valur15-519
6Keflavík14-716
7Stjarnan14-315
8ÍBV14-715
9ÍA14-915
10KA14-813
11FH14-1111
12Þór14-268
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.