Fotbolti.net
13.07.26 - 20:24
Brynjar Ingi Erluson

Emma Hawkins í Val (Staðfest)

Emma Hawkins í Val (Staðfest)
Canon

Mynd: Valur

Kvennaboltinn
Valur hefur fengið framherjann Emmu Hawkins til félagsins, en óhætt er að segja að þetta sé mikill fengur fyrir Val og kemur hún til með að styrkja liðið gríðarlega fyrir síðari hluta tímabilsins.
Emma er 25 ára gömul og var meðal annars markahæsti leikmaður Lengjudeildarinnar árið 2024.

Hún skoraði þá 24 mörk með FHL, sem komst upp í efstu deild í fyrsta sinn í sögu félagsins.

Emma hefur einnig spilað með Damaiense í Portúgal og Canberra United í Ástralíu.

Þetta er í annað sinn sem Valur reynir að fá Emmu. Í Uppbótartímanum á síðasta ári var greint frá því að Valur hefði reynt að fá hana í byrjun ágúst, en það gekk ekki upp.

Nú tókst það og Emma er gengin í raðir Vals. Hún verður komin með leikheimild þegar félagaskiptaglugginn opnar rétt fyrir helgi.

„Emma er leikmaður sem við höfum fylgst grannt með um nokkurt skeið. Kvennalið Vals er á uppleið og við höfum mikinn metnað fyrir framtíð þess. Við teljum að Emma muni hjálpa okkur að ná markmiðum okkar á þessu tímabili. Gæði hennar og hæfileikar fyrir framan markið munu styrkja liðið verulega og við erum afar ánægð með að fá hana í Val,“ sagði Gareth Owen, tæknilegur ráðgjafi Vals.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1FH13+2530
2Breiðablik13+2430
3Stjarnan14+523
4ÍBV14-321
5Grindavík/Njarðvík14-519
6Fram14-1116
7Þór/KA14-515
8Þróttur R.14-515
9Valur14-1213
10Víkingur R.14-1311
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.